Fyrsta BJJ liðamót á Íslandi haldið í Atlantic á Akureyri

Fyrsta liðamót í Brazilian Jiu-Jitsu (BJJ) á Íslandi fór fram hjá Atlantic á Akureyri um helgina. Mótið bar heitið Atlantic Quintet 2026.
Quintet er frábrugðið hefðbundnum einstaklings mótum í BJJ að því leyti að keppendur glíma fyrir hönd liðsins. Einn keppandi frá hvoru liði mætist í einu og sigurvegari glímunnar heldur áfram og mætir næsta keppanda andstæðinganna. Þannig getur sami keppandinn haldið áfram að glíma þar til hann tapar, gerir jafntefli eða nær að vinna sig í gegnum allt lið andstæðinganna.
Keppnisformið setur því skemmtilegan svip á íþróttina þar sem ekki reynir eingöngu á getu hvers keppanda heldur einnig á liðsheild, taktík og uppröðun keppenda. Ein glíma getur breytt stöðunni hratt og einn keppandi getur jafnvel náð að vinna sig í gegnum marga andstæðinga í röð.
Mótið um helgina var það fyrsta sinnar tegundar hér á landi og var góð stemning í húsinu frá upphafi til enda.
Liðið Frankaher Deathsquad frá Mjölni stóð uppi sem sigurvegari Atlantic Quintet 2026 og varð þar með fyrsta liðið til að vinna BJJ liðamót af þessu tagi á Íslandi. Liðið var skipað úrvals glímu köppunum Breka Harðarsyni, Jón Frank Jóhannessyni og Baltasar Diljan Rúnarssyni.
Uppgjafartak (submission) mótsins átti Ari B. Ring frá Reykjavík MMA, sem kláraði eina af glímum sínum með öflugu toe hold eftir aðeins örstutta viðureign. Andreas Blensner frá BJJ North var jafnframt valinn stemningskeppandi mótsins fyrir góða frammistöðu innan vallar og mikla hvatningu og liðsstuðning utan hans.
Aðstandendur Atlantic segja ljóst að mótið verði endurtekið og þegar er farið að horfa til næsta liðamóts undir yfirskriftinni Atlantic Quintet – Winter.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










