MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

Fulltrúar UFA sóttu tvö gull og þrjú brons

Eftir Ingólfur Stefánsson·
621736766_1374063631184324_7009636592336842033_n-2000×1333
kaffid.is

Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum var haldið í Laugardalshöll um liðna helgi. Fulltrúar UFA komu heim með tvö gull og þrjú brons. 

Í flokki fatlaðra varð Stefanía Daney Guðmundsdóttir Íslandsmeistari í flokki T-20 í 60m og langstökki. Hún varð einnig í fimmta sæti í flokki ófatlaðra í langstökki og stökk lengst 5,11m og átti frábæran endasprett í 4×200 m boðhlaupi kvenna. Einnig varð Helena Ósk Padmavati Hilmarsdóttir tvöfaldur Íslandsmeistari í flokki T-37 í langstökki og 60m, þar sem hún hljóp á 11,03 sek.

Tobias Þórarinn Matharel varð Íslandsmeistari í langstökki karla, en hann stökk 6,85m. Brynjar Páll Jóhannsson varð Íslandsmeistari í hástökki, en hann stökk 1,90m og stórbætti árangur sinn. Gabríel Glói náði í tvö brons, í 60m ( 7,14 sek ) og í 200m (22,40 sek). Dagur Pálmi Ingólfsson náði í brons í langstökki með góðri bætingu og stökk 6,07 m.

Aðrir fulltrúar stóðu sig einnig frábærlega og má sjá öll úrslit hér: Roster Athletics · Meistaramót Íslands

Tengdar greinar

Uppfært: 26. apríl 2026