Gamanleikurinn Fullorðin hefur aftur göngu sína í Menningarhúsinu Hofi í ágúst. Sýningin fjallar um það skelfilega hlutskipti okkar að verða fullorðin og misheppnaðar tilraunir til að sannfæra aðra um að við séum það. Leikarar eru Vilhjálmur B Bragason, Birna Pétursdóttir og Árni Beinteinn og leikstjórar eru Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir og Marta Nordal.
Sýningin sló eftirminnilega í gegn í byrjun árs en hér eru dæmi um ummæli gesta:
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
„Mjög hnyttin, kjarngóð, kraftmikil og skemmtileg sýning.“
„Bráðfyndið um stundum pínlegar hliðar þess að verða fullorðinn. Birna vinnur leiksigur.“
„Þessi sýning sko. Ef þig langar að hlægja mjög mikið á stuttum tíma.“
„Frábær sýning í alla staði.“
Næstu sýningar:










