NTC

Frumvarp um greiðslu atvinnuleysisbóta samhliða minnkuðu starfshlutfalli samþykkt

Frumvarp um greiðslu atvinnuleysisbóta samhliða minnkuðu starfshlutfalli samþykkt

Alþingi hefur samþykkt frumvarp Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra um rétt til greiðslu atvinnuleysisbóta samhliða minnkuðu starfshlutfalli vegna tímabundins samdráttar í starfsemi vinnuveitanda.

„Afgreiðsla Alþingis á frumvarpinu er stórt skref í að mæta þeim fordæmalausu aðstæðum sem nú eru uppi á íslenskum vinnumarkaði. Ég hvet atvinnurekendur að minnka frekar starfshlutfall starfsfólks tímabundið í stað þess að grípa til uppsagna. Ef farin verður þessi leið verður viðspyrnan miklu snarpari og kraftmeiri þegar birta tekur á ný.“, segir Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra.

Á síðu Stjórnarráðsins kemur fram að meginatriði frumvarpsins eru eftirfarandi:

  • Allt að 75% hlutarbætur – Atvinnuleysisbætur greiddar samhliða minnkuðu starfshlutfalli koma ekki til skerðingar á fjárhæð atvinnuleysisbóta enda hafi starfshlutfallið lækkað um 20% hið minnsta en þó ekki neðar en í 25%. Atvinnurekanda er óheimilt að krefjast vinnuframlags umfram nýja starfshlutfallið.
  • Allt að 90% heildarlauna – Greiðslur atvinnuleysisbóta skulu nema hámarki tekjutengdra atvinnuleysisbóta í réttu hlutfalli við hið skerta starfshlutfall. Laun frá vinnuveitanda og greiðslur atvinnuleysisbóta samanlagt geta þó aldrei numið hærri fjárhæð en 90% af meðaltali heildarlauna launamanns miðað við þriggja mánaða tímabil áður en launamaður missti starf sitt að hluta.
  • Þak á samanlagðar bætur og laun 700.000 kr. – Laun frá vinnuveitanda fyrir hið minnkaða starfshlutfall og atvinnuleysisbætur geta samanlagt aldrei numið hærri fjárhæð en 700.000 kr. á mánuði.
  • Laun allt að 400.000 kr. að fullu tryggð – Einstaklingar með 400.000 kr. eða minna í laun á mánuði geta fengið greidd 100% af meðaltali launa.
  • Námsmenn eiga möguleika á hlutarbótum – Námsmenn geta átt rétt á bótum samkvæmt frumvarpinu enda uppfylli þeir að öðru leyti skilyrði ákvæðisins.
  • Gildistími – Ákvæði þessi gilda frá og með 15. mars til og með 31. maí 2020. Þegar nær dregur 31. maí 2020 verður úrræðið endurmetið.

Jafnframt er kveðið á um að sjálfstætt starfandi einstaklingar geti nýtt sér þetta úrræði enda hafi þeir tilkynnt skattyfirvöldum um verulegan samdrátt sem leiðir til tímabundinnar stöðvunar á rekstri.

Taflan sýnir samspil launa og atvinnuleysisbóta hjá einstaklingi í 100% starfshlutfalli.

Sjá frétt á heimasíðu Stjórnarráðsins.

Sambíó

UMMÆLI