MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Frosti frá Grenivík landaði yfir þúsund tonnum af afla í mars

Eftir Ritstjórn·
Frosti frá Grenivík landaði yfir þúsund tonnum af afla í mars
Áhöfnin á Frosta ÞH. Á myndina vantar Birgi H Birgisson, Guðmund Þórðarson, Hjalta Gunnþórsson og Kristinn Þór Skjaldarson. Mynd: Guðmundur Guðmundsson

Skuttogarinn Frosti ÞH-229 frá Grenivík átti heldur betur góðan marsmánuð þar sem áhöfnin landaði yfir þúsund tonnum. Þykir það afar sjaldgæft af bátum á stærð við Frosta.

Alls landaði áhöfnin 1030 tonnum í 16 löndunum í mars sem gerir um 64 tonn í löndun að meðaltali.

Á vef Aflafrétta segir að um Íslandsmet sé að ræða og jafnvel heimsmet en Frosti er 29 metra langur.

Tengdar greinar

Uppfært: 22. apríl 2026