Frítt á leik Þórs/KA og Fram

Næstkomandi föstudag, 25. september, mun knattspyrnulið Þór/KA spila sinn síðasta heimaleik á tímabilinu. Bílaleiga Akureyrar og Grand þvottur ehf. munu bjóða frítt á leikinn.
Þór/KA berst nú fyrir sæti sínu í deildinni þegar tvær umferðir eru eftir. Liðið mætir Fram á föstudaginn en Framarar eru einu stigi fyrir ofan Þór/KA fyrir leikinn. Í lokaumferðinni mætir liðið Víkingum sem eru einu stigi fyrir aftan Þór/KA í fallsæti. Valskonur eru svo í neðsta sæti deildarinnar tveimur stigum á eftir Þór/KA og því tveir gífurlega mikilvægir leikir framundan.
Staðan í neðri hluta deildarinnar:
- Fram – 23 stig – markamunur -15
- Þór/KA – 22 stig – markamunur -3
- Víkingur – 21 stig – markamunur -11
- Valur – 20 stig – markamunur -10
Leikurinn á föstudaginn hefst klukkan 18. Í tilkynningu á vef Þór/KA segir að ýmislegt verði í boði í félagsheimilinu Hamri fyrir leik og á vellinum í leikhlé.
„Það er því full ástæða til að hvetja Akureyringa og annað stuðningsfólk til að fjölmenna á völlinn á föstudaginn, knattspyrna og kvöldmatur beint af grillinu, góður félagsskapur, skemmtileg stemning og svo auðvitað spennandi leikur,“ segir í tilkynningu á vef Þór/KA þar sem má lesa meira um leikinn og stöðuna í deildinni.
Tengdar greinar
Uppfært: 22. september 2026





