MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Frístundastyrkur fyrir eldri borgara

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
Akureyri
Krissi – Akureyri· kaffid.is

Akureyrarbær hefur ákveðið að innleiða nýjan tekjutengdan frístundastyrk fyrir eldri borgara með það að markmiði að efla þátttöku þeirra í uppbyggilegu frístundastarfi og draga úr félagslegri einangrun. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.

Þar segir að styrkurinn sé ætlaður tekjulægri einstaklingum 67 ára og eldri sem eiga lögheimili í Akureyrarbæ. Frístundastyrkinn má nýta til að greiða fyrir námskeið, æfingar eða aðgang að skipulögðu frístundastarfi. Ekki er heimilt að nota styrkinn til kaupa á búnaði, vörum, gjafabréfum eða annarri þjónustu.

Á árinu 2026 nemur fullur styrkur 60.000 krónum en hálfur styrkur 30.000 krónum. Nánar er hægt að sjá á vef Akureyrabæjar hér.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026