Freydís Jóna Jing Bergsveinsdóttir og Jakob Ernfelt Jóhannesson hafa verið valin íþróttafólk SA fyrir árið 2023 og voru þau heiðruð í gærkvöld í nýja félagssal Skautafélagsins. Freydís var einnig valin skautakona ársins hjá listskautadeild SA á dögunum og Jakob íshokkímaður íshokkídeildar SA árið 2023. Bæði tvö eru tilnefnd af Skautafélagi Akureyrar til Íþróttafólks Akureyrar. Þetta kemur fram á vef SA þar sem segir um þau:
Freydís var stiga hæst skautara hjá listskautadeild SA árið 2023 en hún vann til silfurverðlauna á Íslandsmeistaramótinu 2023. Á erlendri grundu keppti hún á Eyof (European Youth festival) sem fram fór í Friouli á Ítalíu þar sem hún hafnaði hún í 27. sæti og í haust tók hún þátt á Diamond Spin í Katowice í Póllandi fyrir Íslandshönd þar hafnaði hún í 15.sæti.
Jakob spilaði stórt hlutverk í liði SA Víkinga sem urðu deildarmeistarar á árinu og náðu þeim eftirtektarverða árangri að vinna alla nema einn leik á tímabilinu. Jakob var lykilmaður í þessum árangri en hann var með marvörslu upp á 94.5 % á tímabilinu sem er eitt hæsta hlutfall markvörslu sem nokkur markvörður hefur náð frá upphafi deildarkeppninnar á Íslandi. Jakob spilaði 4 landsleiki með íslenska landsliðinu á HM á Spáni og átti stóran þátt í frábærum sigri Íslands á Ástralíu þar sem hann var valinn maður leiksins. Jakob er með hæstu markvörsluprósentu allra markvarða í deildinni á núverandi tímabili og lið SA Víkinga ósigrað, liðið hefur einfaldlega ekki tapað deildarleik með Jakob í markinu á öllu árinu 2023.
„Jakob og Aldís eru einstaklega vel að þessum titlum komin og við óskum þeim til hamingju með nafnbótina,“ segir í tilkynningunni á vef SA.
UMMÆLI