MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Franskt herskip í höfn á Akureyri

Eftir María Hjelm·
le monge
Mynd: RÚV/Kristófer Óli Birkisson· kaffid.is

Franska herskipið Le Monge kom í höfn á Akureyri í gær með um 115 hermenn og 80 aðra innanborðs. Skipið, sem er mælinga- og prófunarskip, er næststærsta herskip franska flotans. Þetta kemur fram á RÚV.

Þar segir að samkvæmt tilkynningu frá franska sendiráðinu séu verkefni áhafnarinnar á Le Monge meðal annars þátttaka í prófunum við geimflug og í geimeftirliti. „Um þessar mundir tekur skipið til dæmis þátt í verkefni sem gengur út á að fylgjast með fallandi hlutum úr geimnum, sem gætu hugsanlega valdið fólki skaða. Stærsti radarinn á þilfari skipsins heitir Normandie, vegur 62 tonn og er 14 metrar að þvermáli.“

Skipið er í höfn á Akureyri með leyfi stjórnvalda og er hér til að sækja vistir og hvíla áhafnarmeðlimi.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026