Framtíð norðurslóða og sjávarútvegs rædd á UArctic

Fulltrúar Háskólans á Akureyri og norðurslóðastofnana á háskólasvæðinu tóku virkan þátt í UArctic Congress 2026 í Þórshöfn sem Kaffið fjallaði áður um. Ráðstefnan var sú stærsta sem haldin hefur verið til þessa um málefni norðurslóða, með um 1.400 þátttakendum. Meðal fulltrúa HA var Thanh Viet Nguyen, prófessor við Auðlindadeild, sem stýrði málstofu um bláa hagkerfið, framleiðni í sjávarútvegi og vistkerfismiðaða stjórnun hafsvæða, þar sem meðal annars var rætt um áhrif loftslagsbreytinga á greinina og sjálfbærni í fiskeldi.
Á ráðstefnunni kynnti Thanh tvær rannsóknir. Önnur sneri að framleiðni og skilvirkni í norskum þorsktogurum og hin, sem unnin var í samstarfi við Stefán Bjarna Gunnlaugsson og Hreiðar Þór Valtýsson við HA, fjallaði um aflaviðmið og stofnstærðir í íslenskum þorskveiðum á árunum 1997–2023. Niðurstöður hennar sýna að þótt afli sé nálægt viðmiðum um hámarksarðsemi, er lífmassi stofnsins enn undir því sem telst hagkvæmt til lengri tíma. Helstu ályktanir málstofunnar voru þær að framtíðarstjórnun hafsvæða á norðurslóðum krefjist aukins jafnvægis milli efnahagslegrar framleiðni, þanþols vistkerfa og óvissu vegna loftslagsbreytinga.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










