Framkvæmdir við Krossanesbraut og Undirhlíð

Framkvæmdir við endurbætur á gatnamótum Undirhlíðar og Krossanesbrautar á vegum Akureyrarbæjar hefjast í næstu viku. Samhliða því munu verktakar á vegum Norðurorku ráðast í endurnýjun regnvatnslagna. Greint er frá á vef Norðurorku í dag.
Þar segir að verkefninu sé skipt upp í nokkra áfanga sem hafa mismunandi áhrif á umferð vegfarenda, bæði gangandi og ökutækja.
Í fyrsta áfanga verður Krossanesbraut lokað í báðar áttir, til norðurs frá gatnamótunum og til suðurs rétt sunnan við gatnamótin við Þverholt. Hjáleið er um Hörgárbraut. Þessi lokun hefst mánudaginn 21. september.
Í seinni áföngum verða gatnamótin ýmist alveg lokuð eða opin að hluta, en það fer eftir framvindu framkvæmda við bæði gatnamótin og regnvatslögnina. Ekki er hægt að tímasetja nákvæmlega hvenær seinni áfangar hefjast.
„Við erum meðvituð um þau óþægindi sem framkvæmdirnar kunna að valda íbúum og vegfarendum. Við vonumst eftir gagnkvæmum skilningi og teljum að með samvinnu og góðum vilja sé hægt að leysa þau mál sem kunna að koma upp,“ segir í tilkynningu Norðurorku.
Tengdar greinar
Uppfært: 21. september 2026





