Framkvæmdir við jöfnunarstöð að hefjast

Framkvæmdir við nýja jöfnunarstöð fyrir Strætisvagna Akureyrar eru að hefjast. Stöðin verður staðsett við Borgarbraut, á móti Glerártorgi. Þar verður meðal annars biðskýli, aðstaða fyrir vagnstjóra, tæknirými og almenningssalerni. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.
Þar segir að á svæðinu verði gert ráð fyrir aðstöðu fyrir þrjá innanbæjarstrætisvagna og tvo til þrjá landsbyggðarvagna. Samhliða hefjast framkvæmdir við nýja göngubrú yfir Glerá, rétt við jöfnunarstöðina, um 50 metrum ofan við núverandi vegbrú á Hörgárbraut. Einnig verður lagður göngustígur frá stöðinni að Gefjunarstíflu, meðfram ánni, þar sem verða tjarnir og leiksvæði í fallegu umhverfi.
„Með tilkomu brúarinnar og nýrra gönguleiða batnar aðgengi verulega milli Hlíðahverfis og verslunar- og þjónustusvæðis við Glerártorg. Ný gangbraut með ljósastýringu verður við norðurinngang Glerártorgs og tengist hún beint við göngubrúna,“ segir í tilkynningu bæjarins.
„Með þessum framkvæmdum er verið að styrkja tengingar á svæðinu og bæta aðgengi fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur,“ segir Höskuldur R. Höskuldsson, verkefnastjóri nýframkvæmda hjá umhverfis- og mannvirkjasviði, í tilkynningu bæjarins.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










