Framkvæmdir við gömlu náðhúsin undir kirkjutröppunum hafnar
Eftir María Hjelm·

Framkvæmdir við gömlu náðhúsin undir kirkjutröppunum eru hafnar. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu Heima.
„Þar mun á næstu mánuðum rísa nýtt verslunar- og þjónusturými með aðlaðandi útisvæði. Hönnun verkefnisins er unnin í samstarfi við AVH en frá upphafi hefur verið lögð áhersla á að viðbyggingin falli vel að umhverfinu og dragi ekki úr ásýnd kirkjutrappnanna,“ segir í tilkynningunni.
Framkvæmdir hófust um miðjan júní og eru verklok áætluð á seinni hluta ársins.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










