Framkvæmdir halda áfram í Hamarstíg
Eftir Hákon Orri Gunnarsson·

Fyrri hluta lagnastarfsemi Norðurorku á Hamarsstíg, Engimýri og Víðimýri er nú lokið og nú hefst seinni hluti. Samhliða því að Akureyrarbær endurnýjar gangstéttir og malbikar götur til að auka umferðaröryggi á svæðinu, mun Norðurorka endurnýja kaldavatnslagnir, regnvatnsfráveitu og rafstrengi í Hamarstíg. Þessum framkvæmdum er skipt í tvo áfanga þar sem fyrst verður unnið í Hamarstíg frá Mýrarvegi niður að Víðimýri og síðan þaðan niður að Byggðavegi. Vegna þessa mun þurfa að loka götum tímabundið. Norðurorka biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og vonast eftir áframhaldandi skilningi og góðri samvinnu við íbúa.
Nánari upplýsingar á vef Norðurorku.

Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










