MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Framkvæmdastjórn Heilbrigðisstofnunar Norðurlands lýsir yfir vonbrigðum með nýútgefið frumvarp til fjárlaga

Eftir Ingibjörg Bergmann·
Skoðað að byggja nýtt húsnæði fyrir Heilsugæsluna á Akureyri
Heilsugæslustöðin á Akureyri er hluti af Heilbrigðisstofnun Norðurlands.

Framkvæmdastjórn Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) lýsir yfir vonbrigðum með nýútgefið fjárlagafrumvarp. Í þeim auknu fjárframlögum sem ætluð eru til að styrkja rekstur heilbrigðisþjónustu í landinu er litið framhjá heilbrigðisstofnunni og í staðinn sett 20 milljóna króna hagræðingarkrafa á hana. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HSN í dag.

Heilbrigðisstofnun Norðurlands veitir öfluga þjónustu á mörgum sviðum og reksturinn er í jafnvægi. Starfssvæði stofnunarinnar nær frá Blönduósi til Þórshafnar og sinnir allri heilsugæslu á því svæði,  en íbúar eru rúmlega 35.000 þús. Einnig er stofnunin með fjögur almenn sjúkrahús með 149 hjúkrunar-, sjúkra- og dvalarrýmum.

Líkt og annar staðar eru íbúar að eldast og skjólstæðingar veikari þegar þeir útskrifast af sjúkrahúsum. Samkvæmt lýðheilsuvísum landlæknis 2016 og 2017 eru marktækt fleiri íbúar á Norðurlandi sem meta bæði líkamlega og andlega heilsu sína slæma eða lélega samanborið við landsmeðaltal. Það er staðreynd að aðgengi íbúa á Norðurlandi að sérfræðiþjónustu lækna er mun minna en á höfuðborgarsvæðinu. Minni sérfræðiþjónusta eykur álag á heilsugæsluna og því er nauðsynlegt að efla heilsugæslu og alla þjónustu í kringum hana fyrir íbúa á svæðinu. Til þess þarf að veita auknum fjármunum m.a. til heimahjúkrunar og geðþjónustu og til að bæta aðgengi að læknum og öðru fagfólki.

Heilbrigðisstofnun Norðurlands skorar á heilbrigðisráðherra og þingmenn að bregðast við og sjá til þess að á Norðurlandi verði heilbrigðisþjónustan styrkt með auknum fjárframlögum eins og annarsstaðar.

Tengdar greinar

Uppfært: 22. apríl 2026