MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Kynningar

Fræðsla í upplýsingaöryggi fyrir eldri borgara

Eftir Ingólfur Stefánsson·
oli-birgir
Óli Birgir Birgisson· kaffid.is

Föstudaginn 28. ágúst mun Sparisjóðurinn í samstarfi við Símenntun Háskólans á Akureyri (SMAHA) og Félag eldri borgara á Akureyri bjóða upp á fræðslu í upplýsingaöryggi fyrir eldri borgara.

Fræðslan fer fram í félagsmiðstöðinni Birtu, Bugðusíðu 1 á Akureyri og hefst hún klukkan 14:00.

Óli Birgir Birgisson verkefnastjóri í upplýsingatækni hjá Sambandi íslenskra sparisjóða (SÍSP) verður með fræðsluna.

Viðburðurinn er opinn öllum eldri borgurum og kostar ekkert. Boðið verður upp á kaffi og með því.

Nánar um fræðsluna:

Undanfarin ár hafa netsvik og blekkingar á netinu aukist verulega og eru eldri borgarar oft í áhættu. Svindlarar nýta sér traust og reynsluleysi í stafrænum samskiptum til að komast yfir persónuupplýsingar eða fjármuni. Með einfaldri og aðgengilegri fræðslu getum við hjálpað eldri borgurum að þekkja varúðarmerkin, forðast hættur og nota tæknina á öruggan hátt. Óli Birgir Birgisson verkefnastjóri í upplýsingatækni hjá SÍSP fer yfir hvað ber að varast í þessum málum á einfaldan og þægilegan hátt. Erindið tekur um 1 klukkustund.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026