Frá Þór/KA til Abu Dhabi

Frá Þór/KA til Abu Dhabi

Tvær af erlendu knattspyrnukonunum sem hafa leikið með Þór/KA á þessu ári, Lara Ivanuša og Lidija Kuliš, eru á förum frá félaginu. Þær hafa samið við félag í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, Abu Dhabi Country Club. Báðar komu þær til Þórs/KA frá félagi í Króatíu í febrúar og spiluðu sína fyrstu leiki fyrir félagið í A-deild Lengjubikarsins í byrjun mars. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Þórs.

Lara spilaði samtals 20 leiki fyrir félagið, þar af 14 í Bestu deildinni þar sem hún skoraði tvö mörk. Lidija spilaði 21 leik, þar af 15 í Bestu deildinni.

„Brotthvarf þeirra og félagaskipti eru að þeirra eigin ósk, en þegar upp kom að félagið í Abu Dhabi vildi semja við þær var vilji til þess ytra að fá þær strax þar sem nú er innan við mánuður í að félagið leiki í Meistaradeild Asíu. Stjórn Þórs/KA ákvað að standa ekki í vegi fyrir félagaskiptum þeirra þó svo fjórir leikir séu eftir af tímabilinu hjá Þór/KA í efri hluta Bestu deildarinnar. Þór/KA þakkar þeim fyrir framlag þeirra til félagsins og óskar þeim góðs gengis á nýjum vettvangi,“ segir í tilkynningu á vef Þórsara.

Mynd: Thorsport.is / Þórir Tryggva

Sambíó

UMMÆLI