Forvarnateymi Akureyrarbæjar hefur sent bréf til foreldra og forráðamanna

Forvarnateymi Akureyrarbæjar hefur sent bréf til foreldra og forráðamanna barna og ungmenna á Akureyri þar sem vakin er athygli á því að bæjarhátíðir eins og Ein með öllu um verslunarmannahelgina séu ekki ætlaðar eftirlitslausum ungmennum og að foreldrar beri ábyrgð á börnum sínum til 18 ára aldurs eða þar til þau verða lögráða. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.
Lögð er áhersla á að foreldrar og forráðamenn barna og ungmenna taki virkan þátt í að tryggja öryggi og velferð þeirra, foreldraábyrgð nái til 18 ára aldurs og skipti sköpum í forvarnarstarfi.
Reynslan sýni að áhrifaríkustu verndandi þættirnir séu að:
- foreldrar viti hvar ungmenni þeirra eru og með hverjum
- foreldrar setji skýr mörk og fylgi þeim eftir
- foreldrar hafi virkt samtal og samráð sín á milli
Foreldrar og forráðamenn eru því sérstaklega hvattir til að:
- ræða fyrirfram við ungmenni sín um áform vegna verslunarmannahelgarinnar
- samræma viðmið við aðra foreldra
- leyfa ekki eftirlitslaus samkvæmi
- fylgjast með ferðum og tryggja örugga heimkomu
- vera til staðar og aðgengileg ef á þarf að halda
„Mikilvægt er að hafa í huga að bæjarhátíðir eru ekki ætlaðar eftirlitslausum unglingum. Akureyrarbær mun, í samstarfi við viðbragðsaðila og viðburðarhaldara, tryggja sýnilega nærveru á vettvangi með flakkandi félagsmiðstöð. Sú vinna er þó aðeins hluti af heildinni því þátttaka foreldra er lykilforsenda þess að vel takist til. Verði barn undir lögaldri fundið ölvað er það skylda fagaðila að tilkynna slíkt til barnaverndar. Með samstilltu átaki getum við stuðlað að öruggri og jákvæðri verslunarmannahelgi með ungmennum bæjarins,“ segir í bréfi forvarnateymisins til foreldra og forráðamanna barna og ungmenna.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










