Forsetinn setur sjöttu Sjálfbærniráðstefnuna

Umhverfisráð Háskólans á Akureyri býður til sjöttu Sjálfbærniráðstefnunnar miðvikudaginn 10. apríl. Ráðstefnan er opin öllum, þátttaka er gjaldfrjáls og er hægt að taka þátt á staðnum eða í streymi. 

Forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir, setur ráðstefnuna. Að lokinni setningu heldur Jukka Heinonen frá Háskóla Íslands lykilerindi sem ber yfirheitið, „Affluence and the climate-sustainability illusion in the Nordics“. Í kjölfarið tekur við metnaðarfull dagskrá sem hægt er að nálgast hér

Vaxandi vettvangur fyrir alþjóðlegt samtal um sjálfbærni

Sjálfbærniráðstefna Háskólans á Akureyri hefur á örfáum árum þróast í öflugan og fjölbreyttan vettvang miðlunar og umræðu um umhverfismál. Ráðstefnudagurinn í ár státar af öflugri blöndu innlendra og alþjóðlegra erinda. Fyrirlesararnir koma meðal annars frá Bretlandi, Austurríki, Suður-Afríku, Grikklandi, Brasilíu, Póllandi og Indlandi. Fjallað verður um allt frá loftslagsbreytingum og auðlindanýtingu til örvera, mengunar, vistkerfa og samfélagslegra áskorana.

Grænfáninn afhentur í sjötta sinn

Í hádeginu sama dag verður sérstök athöfn þar sem háskólanum verður afhentur Grænfáninn í sjötta sinn. Fulltrúi Landverndar afhendir fánann. Háskólinn á Akureyri hlaut Grænfánann fyrstur allra íslenskra háskóla árið 2013. 

Ráðstefnan fer fram eins og áður sagði föstudaginn 10. apríl og hefst hún klukkan 09:00 í Háskólanum á Akureyri auk þess sem henni verður streymt í gegnum Zoom.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!