MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Forseti Íslands fundaði með bæjarstjóra Akureyrar

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Screenshot-2026-07-25-at-16.40.55
Mynd: Akureyri.is· kaffid.is

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, átti fund með Berglindi Ósk Guðmundsdóttur, bæjarstjóra Akureyrar, síðastliðinn fimmtudag. Í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar segir að þær hafi átt notalega stund saman þar sem þær ræddu alla heima og geima.

Sjá einnig: Forsetahjónin á Landsmóti skáta

Áður en þær settust niður sagði Halla í samtali við Akureyri.is að hún vildi einfaldlega kynnast Berglindi, vita hverjar áherslur hennar væru og áhugamál. Halla hrósaði bænum fyrir það hversu blómlegur og fallegur hann væri, hér væri augljóslega gott að búa.

Berglind sagði það vera afar ánægjulegt að fá að eiga slíkan fund með forsetanum samkvæmt vef bæjarins. Við upphaf fundar var meðal annars rætt um stöðu svæðisborgarinnar Akureyrar og mikilvægi beina flugsins um Akureyrarflugvöll.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026