Forsetahjónin á Landsmóti skáta
Eftir María Hjelm·

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Björn Skúlason eiginmaður hennar, heimsóttu landsmót skáta í Hömrum á Akureyri í gær. Þetta kemur fram á vef mbl.is.
Þar segir að forsetahjónin hafi meðal annars kíkt á axarkast, drullubolta og bogfimi.
Forseti Íslands hefur verið verndari skátahreyfingarinnar frá 50 ára afmæli skátastarfs á Íslandi árið 1961. Samstarfið hefur meðal annars átt sinn fasta sess með afhendingu forsetamerkisins á Bessastöðum á ári hverju, en þar afhendir forseti heiðursmerki til 18-19 ára ungmenna sem hafa til þriggja ára sett sér markmið um að efla sig sjálf en á sama tíma efla samfélagið með sjálfboðalistastarfi. Heimsókn þeirra hjóna vakti því mikla ánægju.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










