MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Fornbílar við Hof vekja athygli

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Fornbílar við Hof vekja athygli
Mak.is

Fornbíladeild Bílaklúbbs Akureyrar hélt á miðvikudagskvöld fyrsta fornbílahitting sumarsins við Menningarhúsið Hof. Er ætlunin að vera við Hof frá kl. 20 öll miðvikudagskvöld í sumar, ef veður leyfir, og leyfa fólki að virða fyrir sér glæsibílana að utan sem innan. Uppákoman vakti mikla forvitni gesta og gangandi.

Fornbílahittingurinn er samstarfsverkefni Bílaklúbbs Akureyrar, MAk og Akureyrarstofu. Jafnframt verður viðburðurinn hluti af Listasumri og þá fjölgar óvæntum uppákomum við Hof á miðvikudagskvöldum.

Tengdar greinar

Uppfært: 22. apríl 2026