Síðastliðið mánudagskvöld voru foreldrar og forráðamenn barna sem voru á leikskólanum Tröllaborgum árið 2024 boðaðir á fund í Giljaskóla vegna meintrar óviðeigandi framkomu starfsmanns leikskólans gagnvart barni. Í kjölfarið sendi Akureyrarbær frá sér tilkynningu til fjölmiðla þar sem kom fram að bærinn hefði óskað eftir því að málið yrði tekið til rannsóknar hjá lögreglu að nýju og að Akureyrarbær hyggist fara yfir verklag sitt og innri ferla vegna málsins.
Hér má lesa nánar um málið og sjá tilkynningu Akureyrarbæjar í heild.
Í tölvupósti Akureyrarbæjar til foreldra eftir fundinn segir að starfsmanninum hafi verið sagt upp störfum en að rannsókn málsins hafi verið í höndum barnaverndar og lögreglu. Þegar upplýsingar hafi borist um að meint atvik hefði átt sér stað innan lóðar leikskólans hafi verið ákveðið að halda umræddan fund og Akureyrarbær farið fram á að lögreglan taki málið til rannsóknar á ný. Það sé helsta ástæðan fyrir því að sveitarfélagið hafi ekki brugðist við með eðlilegri upplýsingagjöf þegar meint atvik átti sér stað.
„Staðreynd málsins er sú að haustið 2024 höfðu fræðsluyfirvöld Akureyrarbæjar ekki aðrar upplýsingar en þær að meint atvik hefði átt sér stað utan leikskólans. Umræddum starfsmanni var sagt upp störfum en rannsókn málsins var í höndum barnaverndar og lögreglunnar.“
Úr tölvupósti Akureyrarbæjar til foreldra
Móðir barns á leikskólanum, skrifaði um málið á Facebook-síðu sinna í kjölfar tilkynningar Akureyrarbæjar þar sem hún gagnrýnir vinnubrögð hjá Akureyrarbæ og Barnaverndarnefnd.
„Starfsmaðurinn sem um ræðir var tilkynntur til barnaverndar í ágúst, en fékk að starfa óáreittur á leikskólanum í 4–5 vikur, allt fram til 1. október. Ég hef séð skrifleg gögn, undirrituð af barnavernd, sem staðfesta þetta. Á þeim tíma var hann meðal annars einn lokaður inni í herbergi með 3–4 litlum börnum í einu. Meðal annars mínu barni! Við foreldrarnir getum borið vitni um það.“
Tekið úr Facebook-innleggi móðurinnar
Hún segir að henni finnist fréttatilkynning og samskipti bæjarins vera leið til að víkja sér undan ábyrgð og fela þau mistök sem voru gerð þar sem alls ekki sé sagt rétt frá.
Fjöldi annarra foreldra barna á leikskólanum sem lýsa svipaðri upplifun hafa haft samband við Kaffið síðustu daga vegna málsins. Faðir barns sem var á leikskólanum á þessum tíma, sem vill vera nafnlaus, segir að hann hafi rætt við skólastjórnendur vegna vanlíðan barns sín en ekki fengið nein svör.
„Vitneskja mín er eingöngu komin til vegna Facebook-hópsins Mæðratips. Við vitum ekki einu sinni málsatvik ég veit ekkert hvað ég á að vera hræddur við að eigi að hafa gerst, sem er fáránlegt. Ég hefði rætt öðruvísi við barnið mitt árið 2024 hefði ég vitað að það væri kannski eitthvað að ræða. Það hljómar voða vel hversu margir voru mættur af sérfræðingum á fundinn en enginn gaf nein svör og ég er ennþá engu nær.“





