Fluttir með þyrlu á SAk eftir umferðarslys

Í dag klukkan 12:45 barst lögreglunni á Norðurlandi eystra tilkynning um umferðarslys á Hringvegi við Neslönd í Mývatnssveit. Bifreið lenti út af þjóðveginum en tveir aðilar voru í bifreiðinni. Viðbragðsaðilar frá Þingeyjarsveit, Húsavík og Akureyri fóru á vettvang. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar á Facebook.

Þar segir að annar aðilinn sé talinn alvarlega slasaður og notast var við björgunarklippur við að ná viðkomandi út úr bifreiðinni. Fyrir skömmu flutti þyrla Landhelgisgæslunnar aðilana af vettvangi til aðhlynningar á Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Unnið er að rannsókn slyssins og vegna vinnu á vettvangi geta orðið umferðartafir um Hringveg norðan og vestan við Mývatn fram eftir degi. Vegfarendum er bent á veginn austan og sunnan við Mývatn

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!