Flutningar á dag- og göngudeildarþjónustu geðdeildar SAk

Nú standa yfir flutningar á hluta af dag- og göngudeildarþjónustu geðdeildar Sjúkrahússins á Akureyri, SAk, í nýtt húsnæði að Hafnarstræti 97, 6. hæð. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef SAk.

Starfsemin sem flyst nær til allrar dagþjónustu sem sinnir bæði legudeildar- og göngudeildarsjúklingum, sem og hluta af göngudeildarþjónustu. Gengið er inn á sama stað og á heilsugæslunni áður, hvort heldur sem er úr göngugötu eða að ofan frá Gilsbakkavegi.

Flutningarnir munu hafa tímabundin áhrif á þjónustu. Engin dagþjónusta verður veitt fyrir legudeildarsjúklinga í dag föstudag, en hún hefst á ný mánudaginn 13. apríl með breyttri dagskrá í nýju húsnæði.

Sjúklingar í dagþjónustu á göngudeild hafa flestir þegar fengið boðun í viðtöl í næstu viku á nýjum stað. Ný dagskrá fyrir dagþjónustu hefst mánudaginn 20. apríl með nýrri dagskrá.Björg bjargráðarhópur mun einnig hefjast á nýjum stað mánudaginn 13. apríl. Þeir sem eiga bókuð viðtöl á göngudeild munu fá upplýsingar um breytingar á staðsetningu viðtala eftir því sem við á.

„Við leggjum áherslu á að gera flutningana sem þægilegasta og hlökkum til að taka á móti skjólstæðingum í Hafnarstrætinu,“ segir í tilkynningu SAk.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!