Klukkan 16:00 í dag var flugslysaáætlun fyrir Akureyrarflugvöll virkjuð á neyðarstigi vegna einkaflugvélar sem var að taka á loft frá Akureyrarflugvelli og átti í vélarvandræðum. Um borð voru 11 einstaklingar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi eystra.
Þar segir að þegar ræst sé út á neyðarstigi fyrir Akureyrarflugvöll þá virkjast allar viðbragðseiningar í Eyjafirði sem og landsdekkandi ábyrgðar- og þjónustueiningar á höfuðborgarsvæðinu.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Sem betur fer lenti vélin heilu og höldnu klukkan 16:26 og í kjölfarið var neyðarstigi aflýst. „Viljum við þakka öllum viðbragðseiningum kærlega fyrir þeirra framlag og skjótt viðbragð nú sem endra nær,“ segir í tilkynningu lögreglu.










