Vél Niceair, Súlur, er um þessar mundir í Portúgal í viðhaldi. Í millitíðinni hefur Niceair fengið stærri vél af gerðinni A321 til notkunar, sú vél er með 220 sæti og norðlenska flugfélagið ákvað því að bjóða tilboð í flug.
Um næstu helgi verður flug á milli Akureyrar og Kaupmannahafnar á 25 þúsund krónur báðar leiðir. Flogið er á morgun, fimmtudaginn 9. mars og sunnudaginn 12. mars.
Hægt er að bóka flug hér.
UMMÆLI