Fyrsta áætlunarflug vetrarins með Air Iceland Connect á milli Akureyrar og Keflavíkur fór í gærmorgun frá Akureyri. Síðasta vor ákvað flugfélagið að hætta að bjóða upp á flugin en að lokum var tekin ákvörðun um að gera aðeins hlé yfir sumartímann.
Í vetur verður boðið upp á flugið fjórum sinnum í viku. Frá Akureyri á mánudögum, miðvikudögum, fimmtudögum og föstudögum og frá Keflavík á mánudögum, miðvikudögum, fimmtudögum og sunnudögum.
Flogið verður á 37 sæta Bombardier Q200-vél og eru því tæplega 300 sæti í boði í hverri viku. Þetta er töluvert minni vél en notuð var áður. Keflavíkurflugið mældist vel frá Akureyri meðal heimamanna síðasta vetur en fjöldi erlendra ferðamanna í fluginu stóðst ekki væntingar.