Björgunarsveitin Súlur á Akureyri var kölluð út á mánudagskvöld vegna storms sem gekk yfir Norðurland eystra. Á verkefnalista sveitarinnar mátti meðal annars finna fjúkandi trampólín og gróðurhús, hjólhýsi á ferðinn, fallna ljósastaura, lausar þakplötur og fok á byggingarsvæðum.
Sjá einnig: Aðgerðarstjórn lögreglunnar á Norðurlandi eystra virkjuð í gærkvöldi
Þrír hópar frá Súlum sinntu verkefnunum. Jón Kristinn Valdimarsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Akureyri sagði að töluvert hafi verið um foktjón í bænum. Engin slys hafi þó orðið á fólki.