Fjórum myndavélum með upptökubúnaði verður komið fyrir á Akureyrarkirkju á næstu vikum en um mótvægisaðgerðir eru að ræða vegna skemmdarverka sem unnin voru á kirkjunni fyrir skemmstu. Það er Vikudagur sem greinir frá þssu.
Eins og fjölmiðlar greindu frá í byrjun þessa árs voru skemmdarverk unnin á fjórum kirkjum í bænum þegar skilaboðum var úðað á kirkjurnar. Skemmdarverkin voru unnin á Akureyrarkirkju Kaþólsku kirkjunni, Glerárkirkju og Hvítasunnukirkjunni.
UMMÆLI