Fjórtán einstaklingar hafa sótt um starf safnstjóra Listasafnsins á Akureyri. Þetta kemur fram á vef Akureyri.net í dag. Þar segir að Hlynur Hallsson muni láta af starfinu í sumar eftir 10 ár við stjórnvölinn og að ráðið verði í starfið næstu fimm árin.
Eftirtalin sækja um starfið samkvæmt Akureyri.net þar sem er fjallað nánar um málið:
- Birta Guðjónsdóttir, myndlistarmaður og sjálfstætt starfandi sýningastjóri
- Daría Sól Andrews, sýningastjóri og verkefnastjóri
- Elsa María Guðmundsdóttir, sjónlistakennari
- Hanna Styrmisdóttir, prófessor
- Ingunn Anna Þráinsdóttir, framkvæmdastjóri
- Jasmina Wojtyta
- Marta Florczyk, listakona
- Rafaela Sousa
- Sigríður Örvarsdóttir, safnstjóri og forstöðumaður
- Simona Urso, flugvallarstarfsmaður
- Snæbjörn Brynjarsson, safnvörður
- Sunna Ástþórsdóttir, safnstjóri
- Yalda Nasimee
- Þuríður Helga Kristjánsdóttir, verkefnastjóri og fyrrverandi framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar
UMMÆLI