Fjórir Íslandsmeistarar úr röðum KA

Fjórir Íslandsmeistarar úr röðum KA

Fjórir keppendur frá KA urðu Íslandsmeistarar í klassískum kraftlyftingum á dögunum. KA varð í þriðja sæti í samanlagðri stigakeppni kvenna og í fjórða sæti í stigakeppni karla á Íslandsmótinu sem fór fram í húsakynnum Stjörnunnar í Garðabæ.

Í umfjöllun á vef KA segir eftirfarandi um Íslandsmeistarana:

Drífa Ríkarðsdóttir varð Íslandsmeistari í -57kg flokki og marbætti íslandsmet í bæði hnébeygju með og réttstöðulyfti. Drífa lyfti mest 137.5kg hnébeygju og 185kg réttstöðulyftu. Hún setti Íslandsmet í samanlögðu með 407.5kg samanlagt. Einnig varð hún í öðru sæti á stigum samanlagt en þá eru gefin stig fyrir hverja lyftu, óháð þyngdarflokki. Sú sem varð stigahæst var Lucie Stefaniková sem keppti fyrir Stjörnuna í 84kg flokki.

Aníta Rún Bech Kajudóttir varð Íslandsmeistari í -63kg flokki. Hún lyfti 255kg í samanlögðu og bætti sig bæði í bekkpressu og réttstöðulyftu. Aníta er aðeins 19 ára gömul.

Friðrik Alvin Grankvist átti mjög góðan dag og fékk allar lyftur gildar og náði þriðja sæti í -93kg flokki með 517.5kg samanlögðu. Líkt og Aníta er Friðrik 19 ára.

Viktor Samúelsson varð Íslandsmeistari í 105kg flokki og átti frábærar dag. Hann fékk allar lyftur gildar og sló fjölmörg Íslandsmet, bæði í hnébeygju, réttstöðulyftu og samanlögðu þar sem hann lyfti 818kg. Þar að auki varð hann í öðru sæti á stigum á mótinu og varð rétt á eftir fyrsta sætinu.

Viktor var í skemmtilegu viðtali á Mbl.is sem er vert að skoða hér

Þorsteinn Ægir Óttarsson varð Íslandsmeistari í 120+ flokki þar sem hann lyfti 780kg í samanlögðu.

Við óskum þessum glæsilegu fulltrúum KA til hamingju með Íslandsmeistaratitla og glæsilegan árangur á mótinu.

Öll úrslit mótsins má sjá hér

Sambíó

UMMÆLI