NTC

Fjórflokkun við heimahús á Akureyri

Fjórflokkun við heimahús á Akureyri

Sumarið 2024 verða innleidd ný skref í flokkun úrgangs hjá Akureyrarbæ. Safnað verður fjórum fjórum flokkum við hvert heimili í bænum: blönduðum úrgangi, matarleifum, plastumbúðum og að lokum pappír og pappa. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef bæjarins.

„Akureyringar eru og hafa um árabil verið framarlega þegar kemur að flokkun úrgangs en við getum með auðveldum hætti gert betur,“ segir á vef bæjarins.

Öllum tunnum fyrir úrgang verður skipt út sumarið 2024. Verkefnið hefst í lok maí og er áætlað að því ljúki í september.

Byrjað verður nyrst í bænum og verður unnið til suðurs. Reiknað er með að tunnum í Þorpinu verði skipt út í maí og júní en í öðrum hverfum í ágúst og september. Tunnunum verður skipt út samhliða sorphirðu. Leitast verður við að íbúar finni sem minnst fyrir breytingunum og sett í algjöran forgang að röskun á daglegum venjum þeirra verði óveruleg.

„Mikilvægur þáttur í bættri flokkun er að draga sem allra mest úr urðun úrgangs en því miður verður óhjákvæmilegt að safna áfram blönduðum úrgangi til urðunar. Með þetta í huga er mikilvægt að flokka matarleifar, pappír og plast í rétt ílát og ekki síður að fara með allan tilfallandi umframúrgang í grenndargáma og á gámasvæði og flokka þar í rétt ílát. Sé þetta vel gert mun það draga verulega úr magni blandaðs úrgangs og þannig draga úr urðun. Við getum þetta saman!“ segir í tilkynningu bæjarins.

Hér er upplýsingasíða um breytingarnar og hvernig þetta verður við þitt heimili.

Sambíó

UMMÆLI