Fjórfalt afmæli, bangsa-, dúkku-, dýra- og barnaafmæli

Í tilefni af barnamenningarhátíð, páskum og sumardeginum fyrsta í apríl setja listasysturnar Áslaug og Brynja Harðardætur Tveiten upp gluggasýningu á vinnustofu þeirrar síðarnefndu í Hafnarstræti 88. 

Boðið er í fjórfalt afmæli, bangsa-, dúkku-, dýra- og barnaafmæli. Það glittir í sumarkomuna, sætar kökur og snúða á uppdekkuðum borðum og gjafirnar eru ekki af verri endanum, ýmis leikföng og annað góss. Efniviður sýningarinnar er endurnýtt dót m.a. frá skrautmunasölunni Fröken Blómfríður og nytjamörkuðum. Sýningin er kjörinn áfangastaður í gönguferðum, gott tækifæri til að staldra við, leika sér og vekur eflaust upp forvitni og gleði hjá vegfarendum.  

  • Hvað eru bangsarnir margir? En dúkkurnar?
  • Hvaða dýr sérðu? Áttu uppáhalds dýr? 
  • Hvar eru kisurnar í dúkkuhúsinu? 
  • Hverjir eiga afmæli og hvað er í litlu pökkunum?
  • Hvaða bragð skyldi vera af kökunum og hvað eru kertin mörg? 
  • Hvað eru dýrin að bralla, af hverju er barbídúkkan í rauða sófanum bara í einu stígvéli, eru Jón Oddur og Jón Bjarni í veislunni? 
  • Veljið hlut í huganum og farið í ´falin hlut´.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!