
Laugardaginn 10. febrúar kl. 11-12 verður boðið upp á fjölskylduleiðsögn í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi. Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, segir börnum og fullorðnum frá sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur, Stúlka með hjól, en sýningunni lýkur sunnudaginn 11. febrúar.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Að lokinni leiðsögn er gestum boðið að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum listakonunnar. Aðgangur er ókeypis.










