MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Fjölmörg hagsmunamál Norðurlands eystra til umræðu á haustþingi SSNE

Eftir Ingólfur Stefánsson·
HaustthingSSNE_Dalvik
kaffid.is

Fjölmörg stór hagsmunamál Norðurlands eystra verða til umræðu á haustþingi SSNE, sem haldið verður í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík miðvikudaginn 9. september. Meðal þeirra eru áframhaldandi uppbygging Akureyrarflugvallar og öryggisinnviða á Norðurlandi, þar á meðal með staðsetningu á þyrlum Landhelgisgæslunnar á vellinum.

Þá verður meðal annars fjallað um orkuöryggi og uppbygging raforkukerfisins, fjarskipti og stafræna grunninnviði. Í tillögum að ályktunum þingsins er jafnframt vakin athygli á óvissu um framtíð endurhæfingarþjónustu og innviða á Kristnesi, og mikilvægi þess að opinber störf dreifist um landið.

Á dagskrá þingsins verður auk þess umræða um breytingar á heilbrigðiseftirlitum, en samkvæmt nýjum lögum frá Alþingi sem taka gildi um áramót færist mikill hluti af starfssviði heilbrigðiseftirlita nú til ríkisins, en ákveðin verkefni verða áfram hjá sveitarfélögum sem þarf að finna farveg.

„Samkvæmt nýjum lögum falla heilbrigðisnefndir sveitarfélaga brott sem sérstök stjórnvöld á sviði matvælaeftirlits, hollustuhátta og mengunarvarna. Þrátt fyrir þessa tilfærslu hverfa ekki öll verkefni af sveitarfélögunum. Þau munu áfram bera ábyrgð á fjölda staðbundinna verkefna sem tengjast nærumhverfi. Upplýsingar um nánari útfærslu þessa hluta breytinganna hafa verið takmarkaðar og sveitarfélögin hafa haft takmarkaða aðkomu að undirbúningi málsins þar til núna. Af þeim sökum liggur ekki fyrir skýr heildarmynd af því hvaða verkefni verða áfram á sveitarstjórnarstigi, hvert raunverulegt umfang þeirra verður eða hvaða sérfræðiþekkingu þau kalla á. Á meðan sú greining liggur ekki fyrir kann að vera skynsamlegt að stíga varfærin skref og forðast að festa framtíðarfyrirkomulagið of snemma í sessi,“ segir Heimir Örn Árnason formaður stjórnar SSNE.

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og fyrsti þingmaður Norðausturkjördæmis, ávarpar þingið.

Haustþing SSNE er öllum opið. Málfrelsi og tillögurétt á þinginu hafa þó aðeins þingfulltrúar og boðsgestir.

Nauðsynlegt er að skrá þátttöku fyrir hádegi föstudaginn 4. seeptember í gegnum vefsíðu SSNE.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026