Fjölmenning og samkennd á Klöppum

Leikskólinn Klappir á Akureyri hóf í mars nýtt þemaverkefni þar sem lögð er áhersla á fjölmenningu og fjölbreytileika í starfi leikskólans. Greint er frá í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar þar sem segir að markmið verkefnisins sé að efla skilning, virðingu og forvitni gagnvart ólíkum menningarheimum, tungumálum og lífsháttum.

„Leikskólinn býr yfir fjölbreyttum hópi barna og starfsfólks og er sá styrkur nýttur markvisst í verkefninu. Unnið er meðal annars með hugmyndina „við brosum öll á sama tungumáli“, þar sem lögð er áhersla á samkennd og gleði í daglegu starfi. Þá hefur verið skapað hlýlegt starfsumhverfi með því að setja upp kveðjuna „Gott að sjá þig“ á þeim tungumálum sem starfsfólk talar,“ segir í tilkynningu Akureyrarbæjar.

Starfsfólk hefur komið saman í svokölluðu Pálínuboði með mat og góðgæti úr sínum menningarheimum og hefur tekið þátt í fjölbreyttum fræðslu- og skemmtiverkefnum tengdum fjölmenningu.

Á vef Akureyrarbæjar má sjá myndir.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!