MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Fjöldi innlendra kortafærslna nær tvöfaldaðist á Akureyri á Einni með öllu

Eftir Ingólfur Stefánsson·
099112b9-160b-461f-b941-96d3e479f6ee-1
kaffid.is

Miðað við venjulega helgi í júlí fjölgaði innlendum kortafærslum á Akureyri um 95 prósent um verslunarmannahelgina. Þeta kemur fram í tilkynningu frá greiðslumiðlunarfyrirtækinu Teya.

Kortavelta jókst um 68 prósent. Sunnudagurinn var hlutfallslega stærsti dagur helgarinnar, eða þrefalt stærri en venjulegur sunnudagur á Akureyri. Fjöldi nýrra korta, það er að segja kort sem voru ekki notuð á Akureyri undanfarnar átta vikur, jókst um 91 prósent.

Arnar Sveinn Geirsson, forstöðumaður viðskiptaupplifunar hjá Teya, segir gögnin vera til marks um vaxandi vinsældir Akureyrar um verslunarmannahelgina: „Það er áhugavert að sjá hvað Akureyrarbær sækir í sig veðrið, en bærinn virðist vera orðinn hjartað í landinu þessa helgi. Það er gaman að rýna í gögnin eftir stóra ferðahelgi sem þessa, og enn skemmtilegra að deila þeim. Við hjá Teya erum gríðarlega stolt af því hvað okkar fyrirtæki skipa stóran sess hjá smásölu- og þjónustuaðilum víðs vegar um landið.”

„Hvernig sem á það er litið var þetta stærsta verslunarmannahelgi Akureyrar sem við getum séð í okkar gögnum frá upphafi,“ segir í tilkynningu Teya.

Nánar á vef Teya.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026