Fjöldi fólks hefur leitað til læknis eftir hálkuslys á Akureyri í dag og nóg var að gera á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri í morgun. Mikil snjókoma hefur verið á Norðurlandi síðastliðinn sólahring og varað er við hálku. Fjallað er um málið á vef RÚV.
Fólk hefur leitað á bráðamóttöku í dag vegna handleggs- og fótbrota og Lögreglan á Akureyri hefur aðstoðað bæði gangandi og akandi vegfarendur í dag. Nokkuð hefur verið um að ökumenn hafi fest bíla innanbæjar og lögreglan hefur ekið tveimur á bráðamöttóku eftir að hafa dottið í hálkunni.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Það gæti verið meiri hálka en það virðist í bænum þar sem undir snjónum er víða flughált undirlag. Vegfarendur ættu því að fara varlega.










