Fjöldi fólks var mættur á Ráðhústorg á Akureyri í dag á samstöðufund vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Hundruð Úkraínumanna, Rússa, Hvít-Rússa, Pólverja, Eista, Letta og Litháa, sem búa hér á landi, ásamt Íslendingum og öðrum krefjast vopnahlés í Úkraínu.
Úkraínumaðurinn Andrii Gladii, sem búsettur hefur verið á Akureyri síðustu þrjú ár, skipulagði samstöðufund á Ráðhústorgi í dag. Gladii er frá borginni Zaporizhzhia í austurhluta Úkraínu. Hann er stjórnmálafræðingur að mennt og starfar hjá Norðurslóðaneti Íslands á Akureyri.
Glaadi hélt ræðu á Ráðhústorgi fyrir framan fjölda fólks sem var mætt á samstöðufundinn. Hann vill meðal annars að Íslendingar reki rússneka utanríkisráðherrann úr landi og hætti öllum viðskiptum við Rússland.
„Ég veit að það gæti hrætt marga. Þeir eru byrjaðir á Úkraínu en hver gæti verið næstur? Munu þeir stoppa? Við þurfum að stöðva þá strax í dag,“ var meðal þess sem Glaadi sagði í ræðu sinni. Hildur Eir Bolladóttir ávarpaði einnig mannskapinn ásamt öðrum.
Margt fólk hélt á skiltum og fánum þar sem aðgerðum Rússa og Pútin var mótmælt og samstaða sýnd með Úkraínu eins og má sjá á myndunum hér að neðan.