Fjölbreytt íbúðabyggð á Tjaldsvæðisreitnum

Fjölbreytt íbúðabyggð á Tjaldsvæðisreitnum

Akureyrarbær hefur kynnt drög að deiliskipulagi fyrir Tjaldsvæðisreitinn við Þórunnarstræti þar sem kemur fram að svæðinu verður breytt úr tjaldsvæði í fjölbreytta íbúðabyggð.

„Lögð er áhersla á að skapa nútímalegt og sjálfbært hverfi sem fellur vel að núverandi byggð og umhverfi. Helstu áhersluatriði í nýju skipulagi eru blönduð byggð, íbúðir fyrir 60 ára og eldri, þétt og lágreist byggð með bílakjallara, fjölbreytt rými og græn svæði sem stuðla að betri lífsgæðum íbúa,“ segir í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.

Deiliskipulagið er unnið í samræmi við kröfur BREEAM kerfisins en það tryggir að skipulagið uppfylli ströng viðmið um umhverfisáhrif, sjálfbærni og samfélagslega velferð. Meðal þeirra þátta sem horft er til eru samráð, sjálfbær nýting auðlinda, vistvænar samgöngur og aðlögun að loftslagsbreytingum.

Skipulagsferlið hefur staðið yfir í nokkur ár og er unnið í nánu samstarfi við íbúa, hagsmunaaðila og sérfræðinga. Á kynningarfundum og í gegnum samráðsvettvanginn „Okkar Akureyri“ hafa borist fjölmargar ábendingar og tillögur sem hafa mótað lokatillöguna.

Þau sem vilja senda inn ábendingar geta sagt sína skoðun í gegnum Skipulagsgátt (skipulagsgatt.is mál nr. 68/5).

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó