Fjarnemar við HA búa áfram í heimabyggð eftir útskrift

Niðurstaða rannsóknar sem unnin var af Þóroddi Bjarnasyni, Inga Rúnari Eðvarðssyni, Ingólfi Arnarsyni, Skúla Skúlasyni og Kolbrúnu Ósk Baldursdóttur segir að þrír af hverjum fjórum fjarnemum við Háskólann á Akureyri búa áfram í heimabyggð fimm árum eftir brautskráningu. Rannsóknin birtist í Tímariti um uppeldi og menntun og ber heitið „Svæðisbundin áhrif íslenskra háskóla“.
„Þessar niðurstöður eru í samræmi við tilfinningu okkar hér við HA en þetta er í fyrsta sinn sem sýnt hefur verið fram á sterk tengsl fjarnáms og búsetu í heimabyggð með opinberum gögnum um búsetu fyrir nám,“ segir Þóroddur Bjarnason, prófessor við HA og einn höfunda greinarinnar í samtali við heimasíðu Háskólans.
Rannsóknin sýnir ennfremur fram á að mikill munur er á menntunarstigi þjóðarinnar eftir landshlutum. En fleiri ljúka háskólaprófi af íbúum höfuðborgarsvæðisins á aldrinum 25-64 ára en í öðrum landshlutum. Þessi munur skýrist að hluta af takmörkuðu framboði starfa sem krefjast háskólamenntunar en að hluta af skorti á háskólafólki til starfa.
Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri segir mikilvægt fyrir Háskólann að fá þessar tölur á hreint. „Nú hefur verið sýnt fram á sterk tengsl milli heimabyggða og nemenda sem stunda sitt nám í fjarnámi. Við munum því efla námsformið sem hefur þróast úr því að vera fjarnám yfir í það að vera sveigjanlegt nám. Það þýðir að engu skiptir hvort þú sért á Akureyri eða annars staðar, allir njóta sömu kennslu,“ segir Eyjólfur.
Tengdar greinar
Uppfært: 22. apríl 2026










