Fjarbúðin Hrísey fær styrk upp á 2.640.000 krónur

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur úthlutað tæpum 50 milljónum krónum í styrki til 26 verkefna til að styðja við uppbyggingu vinnustaðaklasa á landsbyggðinni. Fjarbúðin Hrísey sem rekin er af Akureyrarbæ í samstarfi við Þróunarfélagi Hríseyjar fékk styrk upp á 2.640.000 krónur.

Fjarbúðin Hrísey er aðstaða til fjarvinnu og fjarnáms þar sem Hríseyingar sem eru í fjarnámi eða vinna sín störf með fjarvinnslu, geti fengið vinnuaðstöðu.

Drift EA á Akureyri og Artwork Akureyri fengu rekstrarstyrk. Drift EA fékk eina milljón í styrk og Artwork Akureyri fékk 3.360.000 krónur. Markmiðið með styrkunum er að fjölga atvinnutækifærum og auka fjölbreytileika starfa á landsbyggðinni. Þetta er í fyrsta sinn sem styrkir eru veittir sérstaklega til að efla vinnustaðaklasa á landsbyggðinni. Hér að neðan má sjá lista yfir alla styrkþega en nánar má lesa um málið á vef Stjórnarráðsins.

Yfirlit yfir styrkþega

Eftirtalin verkefni hlutu styrk til að byggja upp vinnustaðaklasa og styðja við sjálfbærni þeirra.

a. Ný uppbygging á forgangssvæði.

  • Frystihúsið Tálknafirði. (Akvamar ehf.) Styrkur: 4.000.000.
  • Fjarbúðin Hrísey. (Þróunarfélag Hríseyjar). Styrkur: 2.640.000.
  • Nýtingamiðstöðin Vopnafirði. (Nýtingamiðstöðin Vopnafirði). Styrkur: 3.600.000.

b. Fjölgun plássa á forgangssvæði. 

  • Engar umsóknir bárust innan þessarar forgangsröðunar.

c. Rekstrarstuðningur á forgangssvæði.

  • Skúrin samfélagsmiðstöð á Flateyri. (Skúrin samfélagsmiðstöð á Flateyri ehf.) Styrkur: 1.000.000.
  • Kistan Þórshöfn. (Langanesbyggð). Styrkur: 1.000.000.
  • Höfn Bakkafirði. (Langanesbyggð). Styrkur: 1.000.000.
  • Blábankinn á Þingeyri. (Samfélagsmiðstöðin á Þingeyri ses.) Styrkur: 1.000.000.
  • Ráðhúsið á Raufarhöfn. (Norðurþing). Styrkur: 1.000.000.

d. Ný uppbygging á miðlungs svæði.

  • Bjartsýni á Sauðárkróki. (Naflinn ehf.) Styrkur: 4.000.000.
  • Vatnseyrarbúð á Patreksfirði. (Vesturbyggð). Styrkur: 4.000.000.
  • Gígur í Mývatnssveit. (Náttúruverndarstofnun). Styrkur: 840.000.
  • F52 á Siglufirði. (F52 ehf.) Styrkur: 4.000.000.
  • Heilsukjarninn Laugum í Þingeyjarsveit. (Þingeyjarsveit). Styrkur: 4.000.000.
  • Atwork á Skagaströnd. (IWG Sigló ehf.) Styrkur: 2.400.000.

e. Fjölgun plássa á miðlungs svæði.

  • Skrifstofurými á Blönduósi. Umsækjandi: Ámundakinn ehf.) Styrkur: 1.680.000.

f. Rekstrarstuðningur á miðlungs svæði.

  • Hraðið á Húsavík. (Þekkingarnet Þingeyinga). Styrkur: 1.000.000.
  • Végarður í Fljótsdalshreppi. (Fljótsdalshreppur). Styrkur: 1.000.000.
  • Gígur í Mývatnssveit. (Náttúruverndarstofnun). Styrkur: 1.000.000.
  • Setrið á Egilsstöðum. (Setrið vinnustofa ehf.) Styrkur: 1.000.000.
  • Hæðin Hvammstanga. (Hæðin á Höfðabraut ehf.) Styrkur: 1.000.000.
  • F52 á Siglufirði. (F52 ehf.) Styrkur: 1.000.000.
  • Atwork Ísafjörður. (IWG West ehf.) Styrkur: 1.000.000.
  • Heilsukjarninn á Laugum. (Þingeyjarsveit). Styrkur: 1.000.000.

g. Rekstrarstuðningur á vinnusóknarsvæðum sem telja fleiri en 10.000 manns.

  • Atwork Akureyri. (IWG AK ehf.) Styrkur: 3.360.000.
  • Breið á Akranesi. (Breið þróunarfélag). Styrkur: 1.000.000.
  • Drift EA á Akureyri. (Drift EA ses.) Styrkur: 1.000.000.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!