MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Fisk Kompaní á Akureyri kaupir Betri vörur ehf. á Ólafsfirði

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Fisk kompaní
kaffid.is

Hjónin Ragnar og Ólöf eigendur Fisk Kompaní á Akureyri, hafa gengið frá kaupum á fyrirtækinu Betri vörur ehf. á Ólafsfirði. Með kaupunum styrkir Fisk Kompaní stöðu sína á markaði fyrir gæða sjávarafurðir og eykur framboð á vörum úr laxi og silungi úr landeldi.

Betri vörur ehf. hefur starfað á Ólafsfirði frá upphafi og sérhæfir sig í áframvinnslu á ferskum laxi og silungi fyrir innlendan markað eins og verslanir, hótel og veitingastaði.

Vörur fyrirtækisins eru meðal annars birkireyktur lax, birkireyktur silungur, birkireykt ýsa og grafinn lax, hafa á undanförnum árum fest sig í sessi sem vönduð munaðarvara á íslenskum matarmarkaði.

Betri vörur bjóða eingöngu upp á reyktan og grafinn lax úr landeldi og hafa því markvisst valið að vinna með lax utan sjókvíaeldis, sem er umdeild aðferð við matvælaframleiðslu vegna neikvæðra áhrifa á umhverfi, lífríki og velferð eldislaxa.

„Okkur finnst mikilvægt að standa vörð um gæði og ábyrgð í framleiðslu matvæla. Með kaupunum á Betri vörum getum við sameinað krafta, tryggt enn fjölbreyttara vöruúrval og haldið áfram á þeirri braut að bjóða viðskiptavinum okkar lax og silung úr landeldi,“ segir Ragnar einn eigenda Fisk Kompaní á Akureyri.

Vörur Betri vara fást nú þegar í verslunum Samkaupa, Fjarðarkaupum, Fiskikónginum, Kaupfélagi Skagfirðinga og Hlíðarkaupum á Sauðárkróki. Stefnt er að því að efla enn dreifingu og sýnileika vörulínunnar í kjölfar kaupanna.

Næstu mánuði verður lögð áhersla á að samþætta starfsemi fyrirtækjanna, nýta sameiginlega sérþekkingu og tryggja hnökralaust flæði í framleiðslu og dreifingu.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026