
Þjálfarateymi U17 stúlkna hefur valið 17 stúlkur í úrtakshóp í unglingalandslið U17 sem fer til Tékklands í byrjun janúar í Evrópumót í blaki.
Af þessum 17 stúlkum eru fimm 14 og 15 ára stúlkur frá KA. Það eru þær Sóley Karlsdóttir, Ninna Rún Vésteinsdóttir, Jóna Margrét Arnarsdóttir, Bríet Ýr Gunnarsdóttir og Andrea Þorvaldsdóttir.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
U17 ára liðið er skipað leikmönnum fæddir 2002 og síðar en leikið er í riðlum í 2. umferð. Í riðli Íslands eru lið Spánar, Slóveníu og Tékklands.










