MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Fimm umsóknir um dómaraembætti á Norð­ur­landi eystra

Eftir Ingólfur Stefánsson·
heradsdomur
kaffid.is

Fimm sóttu um embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Norðurlands eystra, sem auglýst var 8. maí síðastliðinn. Umsóknarfrestur rann út 26. maí síðastliðinn og eru umsækjendur eftirtaldir:

  • Erna Björt Árnadóttir aðstoðarmaður dómara við Héraðsdóm Reykjaness.
  • Jón Stefán Björnsson aðstoðarmaður dómara við Héraðsdóm Reykjaness.
  • Margrét Helga Kristínar Stefánsdóttir lögfræðingur hjá Umboðsmanni Alþingis.
  • Sigmundur Guðmundsson lögmaður.
  • Þorbjörg I. Jónsdóttir lögmaður.

Umsóknir verða afhentar dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara á allra næstu dögum. Stefnt er að því að ákvörðun um skipun liggi fyrir hið fyrsta eftir að umsögn dómnefndar berst ráðherra. Héraðsdómur Norðurlands eystra er á Akureyri.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026