Fimm hundraðasti rampurinn vígður á Akureyri
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Síðustu vikur hefur tugum nýrra hjólastólarampa verið komið upp á Akureyri og laugardaginn 20. maí kl. 15 ætla aðstandendur verkefnisins „Römpum upp Ísland“ að vígja 500. rampinn við skemmtistaðinn Vamos á Ráðhústorgi á Akureyri.
Bæjarfulltrúarnir Hlynur Jóhannsson og Hulda Elma Eysteinsdóttir segja nokkur orð og Sigrún María Óskarsdóttir vígir 500. rampinn. Haraldur Þorleifsson, hugmyndasmiður og helsti styrktaraðili verkefnisins, verður viðstaddur.
Boðið verður upp á tónlistaratriði og óáfengan sumardrykk.
Tengdar greinar
Uppfært: 25. apríl 2026










