MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Fimm handteknir í lögregluaðgerð á Akureyri

Eftir Ingólfur Stefánsson·
lögreglan
kaffid.is

Fimm aðilar voru handteknir í aðgerð lögreglu og sérsveitar á Akureyri síðdegis í dag. Skotvopn fundust í tveimur bílum. Þetta staðfestir Hjalti Bergmar Axelsson aðstoðaryfirlögregluþjónn á RÚV í dag.

Lögreglu barst tilkynning um grun um vopnaburð og voru tveir bílar stöðvaðir. Skotvopn fundust í báðum bílum. Fimm voru handteknir og fluttir í fangaklefa. Engin meiðsli urðu á fólki.

Níu voru handteknir í lögregluaðgerð í gærkvöldi en átta af þeim var sleppt á staðnum. Sá níundi var með hníf á sér og var vistaður í fangageymslu í nótt. Haft er eftir Hjalta Bergmanni á vef RÚV að ekki liggi fyrir hvort tengsl séu á milli málanna en hann telur það ólíklegt.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026