MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Fíh og SMHA í samstarf

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Uni32_WEB-1024×621-1
kaffid.is

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) og Símenntun Háskólans á Akureyri (SMHA) hafa gert með sér samning sem veitir félagsfólki Fíh 85 prósent afslátt af völdum námskeiðum hjá SMHA á haustmisseri. Greint er frá á vef SMHA.

„Við hjá Símenntun Háskólans á Akureyri erum afar ánægð með þetta samstarf við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga. Eitt af okkar markmiðum er að byggja upp öflugt samstarf við félög, fyrirtæki og stofnanir og finna leiðir til að mæta þörfum þeirra fyrir sí- og endurmenntun. Við fögnum því alltaf þegar leitað er til okkar með hugmyndir að samstarfi og tökum gjarnan samtalið um hvernig við getum komið til móts við ólíkar þarfir,“ segir Stefán Guðnason, forstöðumaður Símenntunar Háskólans á Akureyri.

Námskeiðin hafa verið valin með það að markmiði að sem flest félagsfólk geti nýtt þau til að efla þekkingu sína og færni í starfi. Jafnframt getur félagsfólk sótt um endurgreiðslu frá Starfsþróunarsetri Fíh (StFíh) fyrir þeim 15% námskeiðsgjaldsins sem það greiðir sjálft.

  • Eftirfarandi námskeið verða í boði á þessum kjörum:
  • Innri þróunarmarkmið – hvernig innri velferð leiðir til ytri grósku
  • Foreldri og ungbarn – tengslamiðuð nálgun fagaðila
  • Jákvæð leiðtogafærni í starfi og lífi
  • Heildræn öndun

Fleiri námskeið kunna að bætast við þennan lista á samningstímanum.

Auk sérvalinna námskeiða hér að ofan fær félagsfólk Fíh 20 prósent afslátt af öðrum námskeiðum SMHA. Sá afsláttur gildir óháð því hvenær skráning fer fram og er án sérstakrar niðurgreiðslu eða greiðsluþátttöku Fíh.

„Þetta fellur mjög vel að stefnu okkar um að vera leiðandi í sveigjanlegri símenntun og gera fólki kleift að efla þekkingu sína og færni óháð búsetu og aðstæðum. Samstarfið við Fíh er gott dæmi um hvernig við getum unnið með fagfélögum að því að gera starfsþróun aðgengilegri og skapa raunveruleg tækifæri fyrir fólk til að halda áfram að vaxa og þróast í starfi,“ segir Stefán.

Nánari upplýsingar fyrir félagsfólk Fíh um hvernig megi nýta sér samstarfið má finna HÉR.

Tengdar greinar

Uppfært: 16. september 2026