Undanfarið hafa eigendur járnarusls, bílhræja og annarra hluta verið hvattir til þess að koma þeim á sorpsvæði eða vera í sambandi við sveitarfélagið Fjallabyggð varðandi förgun og úrvinnslu. Verkefnið mun vera í gangi næstu vikurnar.
„Í dag fóru starfsmenn sveitarfélagsins í samvinnu við Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra af stað og voru fjölmargir hlutir merktir. Með því er eigendum gert kleift að fjarlægja muni innan tveggja vikna frá dagsetningu. Að öðrum kosti verður viðkomandi hlut fargað á kostnað eiganda,“ segir á vef Fjallabyggðar.